Lífið og tilv.

Atli og Steinunn

20.06.2007 15:38:30 / steinka

Ég á afmæli í dag, Ég á...........................

Bara smá færsla, maður er orðinn 27 ára, óMG 3 ár í þrítugt8| Er að fara til Danaveldis á morgun með karlinm mínum, það verður stuð, förum þar í brúðkaup á laugardaginn. Komum svo heim á mánudagskvöld, víííííí. Mamma og pabba verða með skvísuna. Ég hélt smá afmælisteiti í gær fyrir ættmenni og nokkra vini, tókst rosa vel og fékk fult af flottum gjöfum. Í Kaupmannahöfninni ætlum við að gista á 4*hóteli rétt hjá Rådhuspladsen og við verðum svaka fín á því á föstudagskvölinu. Förum á geggjaðan restaurant, búið að gera upp eitthvað gamalt hús, allt moderni inni og maturinn víst æði. Ég er búin að panta 7 rétta máltíð, nammmm. Þetta er slóðinn að síðunni þeirra: http://www.mr-restaurant.dk/site.jsp Það verður verslað fult, kíkt á Jazzhouse, Mojo og fleira. Við höldum til Horsens á laugardagsmorgun og byrjar brúðkaupið hjá dönsku vinum okkar kl. 16.00. Á sunnudeginum förum við til Århus og hittum vini okkar. Jæja nóg í bili, HEJ hej


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 10:05:30 / steinka

God dag, god dag

Jæja einhver smá færsla frá mér. Allt gott af okkur öllum. Það var mikið djamm um helgina, eða semsagt á laugadeginum. Við fengum næturpössun og Lísa M og Casper líka, þannig að við skelltum okkur í diskókeilu með bjór, mikið stuð og mér gekk líka bara ágætlega svei mér þá. Síðan skelltum við okkur heim og grilluðum hvítlaukshumar, fylltar svínalundur+meðlæti og banana með galaxysúkkulaði og vanillúís, nammmmm. Það var spilað partýspilið og svo skellt sér í bæinn til kl. 6.30 arggggggg. Ég hitti nokkra fyrrverandi ms-inga og ég og Lísa tókum nokkur spor, svaka stuð. Smá þynnka daginn eftir, en ekkert svakarlegt. Atli er í Baltimore núna og ætlar víst að versla eitthvað:haha: Anna María er í stuði með smá kvef. Elina María er núna í pössun hjá okkur til sunnudags, þar sem mútta og pabbs skelltu sér til Barcelona, very nice.... Þannig að helgin verður róleg, einhver útivera, sund og grill. Yes best að halda áfram að teikna hús, þarf að skila til byggingarnefndar í dag. Se ya og góða helgi

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 12:02:33 / steinka

Góðan daginn elskur

Jæja þá er ég komin með einhverja flensu, arggg. Hálsbólga og óþægindi. Samt ekki mikill hiti. Annar allt gott af okkur. Atli er að fara í 5 daga flug og ég og Anna María einar að dúlla okkur. Ég ætla líka að upplýsa ykkur um nýja blogsíðu sem Hamraskólinn 1996 hefur stofnað. Þeir sem skoða mína siðu og voru í þessum árgangi Hamraskóla endilega join-ið okkur!! Síðan er: http://blog.central.is/hamraskoli96/index.php og er reyndar linkur hér vinstra meginn á þessari síðu. Það er búið að vera allt á fullu í vinnunni. Er að hanna 300 m2 einbýli og á fundum, og með önnur verk líka. Spennó! Flugleiðaárshátíðin var mjög skemmtileg, fult að skemmtiatriðum, Páll Óskar sá svo um fjörið fram eftir nóttu. Mikið dansað og drukkið8) Úff hvað tíminn er fljótur að líða, þetta var 3.febrúar á afmælisdag Önnu Maríu og mánuðurinn er að vera búinn:S Við vorum með smá mataboð þegar undanúrslit Eurovision var. Mamma, pabbi, Elina María, Matthildur, Íris og Kjartan komu og voru í 3 rétta máltíð og svo var haft það gaman til kl. 2.30. Jæja nóg í bili. Hér er ein mynd sem var tekin af okkur Írisi á árshátíðinni af einhverjum myndatökumanni. Erum við ekki fínar;) Tihihihih sjáiði Atla fyrir aftan!! Alveg eins og einhver pervert hohohoho. Rakaði af sér skeggið eftir að hann sá þessa mynd.

Góða helgi allir

http://farm1.static.flickr.com/188/381784259_c74aa60bcc.jpg?v=0


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 11:05:10 / steinka

Dáldið langt síðan

Hæ everybody við erum hér og ekki þar hohoho

Allt fínt af okkur. Atli er í vetrafríi-very nice, þannig að ég get unnið. Anna María er búin að taka allar pestir sem eru að ganga á leikskólanum, gaman. Annars er ekkert mikið í fréttum. Við vorum með matarboð um helgina, mikið stuð og mikið djamm. Vinir okkar, Kjartan, Íris og Börkur voru meðal oss. Farið i drykkjuleiki og svona. Ég er búin að kaupa mér kort í ræktina, Sporthúsið og fl. og er að reyna að byrja á fullu þegar tími gefst. Lísa Maria var líka dugleg og keypti sér með mér. Jæja þá vitiði það, ef þið kíkið ennþá á síðuna. Þið haldið örugglega að ég sé hætt með hana;) Það fer eflaust að koma að því reyndar. En se ya


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 09:16:24 / steinka

Spurningar og svör, gaman saman

1. Það er dinglað hjá þér tvö að nóttu. Hver myndir þú vilja að það væri? ....Það má ekki dingla hja mér kl. 2.00 á nóttunni 

2. Yfirmaður þinn segir að hann muni veita þér launahækkun ef ... Ekkert ef hann veitir mér bara launahækkun og ekkert múður tihihih

3. Þú í hnotskurn: ég heiti Steinunn Jónsdóttir og er arkitekt, gift Atla flugmanni og á dótturina Önnu Maríu, elska að elda góðan mat, drekka gott rauðvín, ferðast, og hitta vini mína

4. Hefur þú séð draug? ...Já í gamla daga, ekkert voðalega skemmtilegt

 5. Ánægður með líkama þinn? ...Já já hann er allt í lagi, mætti vera massaðri og bæta 5 cm við hæðina

6. Ég myndi flytja til Akureyrar ef... .Myndi aldrei flytja þangað, frekar til Ítalíu

7. Staður sem þú hefur búið á og saknar: Það myndi vera danaveldið

8. Vinna sem þú myndir aldrei starfa við, sama hvað þú fengir borgað: Fiskvinnsla ojjjjjjjjjjjjjjjjjj been there, done that, and never again, jú og vændi er frekar subbulegt starf

9. Hljómsveit sem þér fannst "cool" þegar þú varst 13. ...ætli það hafi ekki verið eitthvað pikupopp, t.d to on lim... og fleira

10. Þú vaknar upp eftir slæma martröð, í hvern myndir þú hringja? ...Engan myndi fara aftur að sofa

11. Langar þér að eignast börn fyrir þrítugs? Eitt komið og já eitt í viðbót fyrir 30

 12. Sterkasta minningin þín úr framhaldsskólanum: dimmitering, djamm, sumarbústaðaferðir 

13. Einhvern tímann verið ástfangin af maka vinar?  ...Nei það er ekkert sneðugt

14. Mesta prakkastrik sem þú hefur gert í vinnunni? ...Það eru ýmis smá prakkarastrik, erum öll hálf klikkuð hérna hehehe

15. Hvorum foreldra þínum líkist þú meira, móðir eða föður?  Mein vater og mömmu svona stundum, koma svipir 

16. Eitthvað sem þú hefur alltaf viljað læra að gera:  já tala spænsku, það mun gerast

17. Enn vinur fyrrverandi maka? á engan fyrrverandi maka

18. Hvar myndir þú vilja vera eftir 10 ár:  Í einbýli, með Atla og Önnu Maríu og 1-2 önnur börn, vinna sem arkitekt og ferðast mikið 

19. Eitthvað sem þú lærðir um sjálfan þig á þessu ári:  já ýmislegt

20. Hvað langar þér í afmælisgjöf? Föt, nudd, dekur, ferð til útlanda o.fl.

21. Nefndu þrjá hluti sem þú gerðir í dag?  1. Fór með Önnu M á leikskólann 2. Fór i vinnuna  3. fékk mér kaffi

22. Það síðasta sem þú verslaðir fyrir þig?  Bol, svartur og ógellega flottur

23. Er eitthvað hangandi undir baksýnisspegilnum í bílnum? Neibb er ekkert fyrir svoleiðis gumms

 24.Hvað fékkstu þér í morgunmat? Cherrios

 25. Hver í kringum þig er með flestu húðflúrinn:  Begga vínkona

26. Hvaða þrjár hljómsveitir sást og heyrðir þú síðustu í:  Humm einhverjar íslenskar

27.Hvað sefur þú að jafnaði í marga klukkutíma á sólahring? c.a 3-7 tíma

28. Hefur þú einhvern tímann verið bundin? Er bundinn manni, svo er hitt leyndarmál

 29. Hvað hefðir þú frekar vilja vera gera þessa stundina? ...Sitja á kaffihúsi með heitt kakó og gott blað, eða bara undir sæng að kúra

30. Hvaða nafn kemur fyrir fremst í símaskránni þinni? ..Arnar Kári frændi minn 

31. Hvenær varst síðast vitni af slagsmálum? Langt síðan, man það ekki

32. Hvaða áfenga drykk drakkstu þú síðast? ...Rauðvín, heitir Svarti svanurinn. mjög gott!

 33. Finnst þér gott að láta toga í háríð þitt? ...Ekki svona almennt, kannski við aðrar athafnir, en það er leyndó.

 34. Nefndu þrjá staði sem þú myndir vilja ferðast til: 1. París 2. Hawai 3. Ástralíu

35. Ertu góð/ur á skautum? ...bara venjuleg

 37. Nefndu eitthvað sem þér myndi langa í en væri flokkað undir óvenjulegt. ...Humm man ekkert núna

39. Hvað finnst þér um BRAD PITT? ...Ekkert spes og ljótur að fara fra konunni sinni til A J ojjjjjjj pojjjjjjjjjjjjjj

40. Nefndu þann vin sem þú átt mest sameiginlegt með? ..Lísa María

41. Hvaða litur er á táneglunum þínum? ...bara hreinar og fínar

42. Við hvern talaðir þú síðast við í síma? ...Lísu M

43. Átt þú eitthvað með hauskúpu á? ...Nei

44. Hefur þú ferðast mikið innanlands? ...Nei hef ekki mikinn áhuga, allt of kalt land

45: Hefur þú ferðast til Afríku? ...Nei, en Atli hefur gert það og mælir ekkert sérstaklega með því

46. Nefndu þrjár manneskjur sem þú myndir treysta fyrir lífi þínu? ..Atli, mamma og pabbi 

47. Síðasta mynd sem þú sást? .Einhver horror mynd um fjöldamorðingja, hún var ágæt

48. Hvar varstu þú þegar þú fékkst fyrsta kossinn? ..fyrir framan grunnskóla minn,

49. Síðasta spil sem þú spilaðir? ...Mylluspil

50. Leður eða Latex? Leður, alveg omögulegt að komast í latex 

51. Hefur þú fengið glóðurauga? ...Já labbaði á hurðarkarm ái það var vont

 52. Á hvaða videoleigu ferð þú helst á? ...Snælandsvideo i Furugrund og bónus video.

Hefur þú gengið í sokkabuxum? ..Já

54. Þekkir þú einhvern sem er í fangelsi? ...Nei


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 23:16:43 / steinka

Bara láta vita

Það eru komnar nokkrar nýjar myndir frá brúðkaupinu og myndir sem Begga vínkona tók af okkur í Öskjuhlíðinni, mjög flottar:) Þið fáið bara svona smjörkeimin af þeim, á síðan endalaust margar flottar myndir sem þeir nánustu fá að sjá!!! Þessar myndir eru inn á barnalandi og er það neðsta albúmið á síðunni.

Góða nótt öllsömul


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 17:29:27 / steinka

Löngu komin frá Mallorca

Hello everybody!! Ég er orðin lasin með kvefpest ojojoj, Atli er ennþá í fríi en byrjar aftur að fljúga á laugardaginn og Anna María var að byrja á leikskóla. Þetta er búið að vera erfið byrjun. Hún grætur svo mikið alltaf þegar við skilum henni og öskrar á okkur, fær ekka og hor. Mér líður alltaf ömurlega og hef meira að segja hugsað hvort ég eigi að vera með hana til 2 ára og byrja þá að vinna fullan dag. Þvílíkt erfitt. En í dag var hún ein frá kl. 8.30-14.00 og gekk víst mjög vel með hana, grét fyrst en hætti svo og var bara góð. Meira að segja sofnaði í klukkutíma. Við erum búin að vera á Mallorca í 6 nættur. Þar var haft það rosa gott og skemmt sér konunglega. Allt var frábært fyrir utan hótelið, moskítobit og smá þynnka, hehehe. Við fórum á jetski, hjólavagn, til Palma að versla og djamma, fullt út að borða og alltaf geggjaður matur með tilheyrandi, valið var oft Mateus rósavín, svalandi og bragðgott í hitanum. Við fórum alltaf á ströndina á daginn, þegar við nenntum og gengum mikið g skoðuðum allt svæðið, Playa de Palma. Við meira að segja enduðum eitt kvöldið á risa diskóteki, sem var í rauninni bara til að ég gæti skoðað arkitektúrinn, þar sem þetta var allt saman geðveikt flott innréttað, 3 hæða hús og glerlyfta sem kom manni á hæðirnar. Í þessari lyftu sá maður yfir Palma. Einhverjir veggir voru úr grjóti svona eins og klettar, gosbrunnar eins og fossar, þvílík ljós og ljósashow, góð tónlist- maður gat valið um tónlist eftir hæðum. Einhvern vegin var ekki hægt að komast hjá djammi á þessum stað þannig að við skelltum í okkur nokkrum vodka í Burn sem er orkudrykkur og vorum orðin létt geggjuð tihihih- eitthvað var dansað, horft á atriði hjá gogodönsurum og talað við innfædda hehehe, stríða þeim aðeins. Mamma og pabbi vorum með snúlluna og leið henni rosa vel hjá þeim, saknaði okkar ekkert:S Flugið heim var hinsvegar ekki það skemmtilegasta. Ég hélt að ég myndi kúka hjartanu og barasta deyja svei mér þá. Vélinn hristist næstum allan Fuc.... tímann og datt úr hæð allavega 3 sinnum og fólk tók andköf arggggg. Ég sagði við Atla sjálfan flugmanninn að ég myndi sko ekki fljúga næstu árin, tihihih eitthvað ekki alveg að passa þar. Hann reyndi að segja að þetta væri sko ekkert mál , en ég sagði honum bara að þegja. En við erum ennþá á lífi, sem betur fer úffffff. Ég setti nokkrar Mallorca myndir inn, undir myndir. Vorum ekki dugleg að taka myndir. Jæja nóg í dag. Það eru líka komnar einhverjar myndir inn á barnaland af Önnu Maríu aðalskvísu. Við sjáumst Adios eitthvað

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 18:26:58 / steinka

Allt gott af okkur

Hello það eru komnar fleiri nýjar myndir frá brúðkaupsdeginum og það eiga eftir að koma enn fleiri:D Ég og Atli ætlum að skella okkur til Mallorca 6.sept-12.sept bara tvö ein að dúlla okkur, það verður nice. Ég á samt eftir að sakna Önnu M um leið og ég segi bææ, úfffff. Þetta verður vonandi fín hvíld og einhver fíflalæti, hohoho. Annars bara allt gott, Atli er búinn að vera í 12 daga leiguflugi og er að fara í sumarfrí þann 1.sept. Anna María byrjar á leikskóla 15.sept, ætlum að reyna að skella okkur í sumarbústað líka. Svo byrja ég að vinna á fullu hjá Úti og Inni, svona til að byrja með allavega. Enda afskaplega þæginleg stofa, gott fólk og skemmtileg verkefni í gangi. Ég segi bara bless, bless

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 14:31:44 / steinka

Yndislegur dagur

Jæja þá hefst sagan:

Ég gisti heima í Logafoldinni eftir annríkan dag og kvöld. Það var safnað saman liði í að skreyta salinn, við vorum 13 manns og gekk þetta eins og í sögu. Enda var salurinn stórkostlegur. Takk elskurnar mínar fyrir hjálpina. Þið sjáið á myndunum hvað þetta var flott. Það var líka farið á æfingu í kirkjunni sama dag. Það var mjög gaman, svo skreyttum við kirkjuna eftir æfingu. Ég var fljót að sofna um kvöldið og svaf eins og steinn um nóttina, enda stór dagur sem beið mín. Ég vaknaði kl. 9.30 og fór í greiðslu kl. 11.00. Þar voru mamma, pabbi og Elina M. Þær skvísurnar voru í greiðslu. Klukkan 13.00 kom Tinna vínkona förðunarfræðingur til okkar og gerði okkur æðislega flottar. Það var auðvitað skálað í freyðivíni og haft það nice. Takk Tinna mín!! Síðan kl. 14.30 kom hárgreiðslukonan aftur og lagði lokarhönd á greiðsluna. Ég var ofboðslega sæt eftir þær. Jú og Jóhanna vínkona mín var búin að dúlla við mig á fimmtudeginum, vaxa mig, andlitsbað, french á tær, nudd, plokkun, litun og fleira. Algjört dekur, hún er fremt í flokki sem snyrtifræðingur, mæli með henni sko!!!!Takk Jóhanna mín, yndi. Að lokum var tíminn orðin dálítið meira en við héldum, þannig að það varð smá stress undir lokinn. Mamma hafði fengið vitlausa sokkabuxnastærð á Elinu M þannig að pabbi þurfti að hendast upp í kringlu kl. 15.00 og það var útsala og þvílíkur troðningur:S Athöfnin var jú kl. 16.00. Mamma var sótt af Matthildi mömmu Atla, Gumma pabba hans og Atla, og var ekki einu sinni komin í föt, gripin á nærunum tihihihi. Síðan kom Anna systir Atla seint og náði í Elinu M og Önnu M. Og allt gleymdist; brúðameyjakarfan, hringarnir, sokkabuxurnar á Elinu M og barmblómið í sveininn, úffff hugsaði ég. Ég var alein og dreif mig einhvernveginn í kjólinn og allt sem fylgdi honum, pabbi kom kl. 15.30 og rendi upp kjólinn. Arnar Kári frændi minn hvar bílstjórinn og kom hann og setti slaufurnar á bílinn og var skemmtilegur. Ég gleymdi brúðarvendinum af því að ég þurfti að muna eftir öllu hinu, en sem betur fer fattaði pabbi það og kom með hann. Við vorum komin upp í kirkju kl. 16.12 og Atla var ekki farið að lítast á blikuna hehehehehe8) Við vorum sett á bak við hlerann, þá fór maður að finna fyrir fiðringi í maganum, svona eins og fiðrildi. Brúðkaupsmarsinn byrjaði og hlerinn dreginn frá og þar blasti við okkur allir gestirnir, presturinn, verðandi maki, pabbi hans og falleg kirkja. Ufffff ég fæ bara gæsahúð við tilhugsunina. Þetta var æði!!! Á eftir okkur gengu Elina María, sem brúðarmey og Axel sem hringberi, ofboðslega flott bæði tvö. Þegar við settumst byrjaði Anna prestur, þetta var svo skemmtilegt allt saman hjá henni. Ég var búin að fá Margréti Eir til að syngja 3 lög, hún söng Eldheitt með píanóundirspili. Þá táraðist ég, þetta er lagið okkar Atla. Síðan söng hún sálm og í lokinn söng hún Lady grinning soul með David Bowie. Ofboðslega flott, allir gestirnir fengu gæsahúð og það var klappað í lokinn. Ég væri til í að heyra hana aftur syngja þessi lög. Þegar við vorum orðin hjón var útgöngumarsinn spilaður á trompet og orgel. Það gerði þetta allt saman svo hátíðlegt og undirstrikaði að við værum orðin hjón, FRÚ Steinunn og Herra Atli Már. Flott maður haaa. Síðan voru gestirnir búnir að raða sig meðfram ganginum og klöppuðu fyrir okkur þegar við gengum í gegn. Elina M blés sápukúlum á okkur þegar við komum út. Eftir þetta var haldið upp í Öskjuhlíð með skemmtilega bílstjóranum okkar, sem reitti af sér brandarana, gaf okkur ananas og jarðaber og freyðivín var opnuð, Fresita nammmmm. Yndislegt. Begga vínkona tók síðan fult af myndum af okkur á völdum stöðum og heil túristarúta kom út og tók myndir af brúðarhjónunum. Voða gaman. Takk Begga mín þú ert yndi!!! Og Arnar Kári þú ert líka yndi of course, takk takk. Þegar myndartöku var lokið var haldið af stað upp í salinn Ýmir. Þegar við komum stóðu þjónar úti með freyðivín í glösunum okkar. Þegar við komum inn þá var Brúðkaupslagið með Todmobile sett á fóninn og við gengum upp á svið, allir klöppuðu fyrir okkur frá svölum sem þeir stóðu upp á. Við gengum upp á svið og Atli bauð fólki velkomið og það var skálað. Síðan komu allir niður og knúsuðu okkur og settust á sín borð. Ari mágur Atla var veislustjóri og stóð sig eins og hetja allan tímann, Þræl góður veislustjóri. Veislan hófst og píanóleikari spilaði frá 17.00-21.00 ótrúlega þæginleg svona píanótónlist yfir mat. Forréttur var borin á borð; lax, humar og rækja. Nóg af rauðvíni og hvítvíni, síðan var steikarhlaðborð og rosa góð súkkulaðimús kaka og kransakökur með S og A ofan á. Við auðvitað skárum saman og mötuðum hvort annað og tókum stafina okkar. Þetta var frábært kvöld, allir svo skemmtilegir, góðar stuttar ræður, uppi stendur ræðan hans pabba og Lísu Maríu æskuvínkonu, ofboðslega fallegt hjá henni, enda táraðist ég. Þorri sýndi powerpointshow af okkur og talaði með, það er langt síðan ég hef hlegið svona mikið tihihih, hann er frábær. Takk Þorri minn, elskan mín. Það var sungið og fólk dregið upp á svið til að stjórna. Afi Þorvaldur stýrði söngnum mjög vel. Það var sunginn t.d Ástardúett eftir Stuðmenn sem var mjög fyndið. Andrea Gylfad. söng líka lag til Atla frá mér, ég ann þér svo heitt heitir það. Hún er alltaf æðisleg. Ég var búin að fá tvær magadansmærir til að koma að dansa og þær stóðu sig mjög vel og var stemmninginn mjög skemmtileg. Þær drógu svo okkur og einn af hverju borði til að dansa með þeim uppi á sviði, afar fyndið.Eftir þetta var brúðavöndur kastaður og Herborg vínkona greip, hún er NÆST, og ég held að Bjössi I hafi gripið sokkabandið, ég er ekki viss. Síðan var dansaður brúðarvalsinn og allir komu út á gólf í lokinn. Þá var ekki aftur snúið því ég var bara föst út á dansgólfinu með mínum bestu vínkonum, ættmönnum og maka. Fólk var í miklu stuði og það var dansað af sér fæturnar þetta kvöld. Meira segja voru nokkrir sem stigu upp á svið og sungu með, þvílíkt stuð!!! Þetta var besti dagur og kvöld sem ég hef upplifað, fyrir utan fæðingu Önnu M. Elina María systir og Helena frænka stóðu sig rosalega vel og sáu um dúlluna okkar. Tóku hana heim og dúlluðu við hana, enda var hún orðin þreytt eftir daginn. Duglegar stelpurnar. TAKK FYRIR ALLIR, takk fyrir að vera með okkur á þessum yndislega degi og gera hann eins og hann var. KNUSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS. Daginn eftir var opnaðir pakkar og borðaðir afgangar, nammmmm nammm. Nóg í bili bæææææ


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 18:42:35 / steinka

Orðin hjón

Hæ hæ ég skrifa brúðardaginn inn á morgun. Ég er búin að setja nokkrar myndir inn á barnalandsíðuna hennar Önnu M. Á fult af myndum sem eiga eftir að koma inn, líka frá veislunni.

Knus SJ


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 19:49:00 / steinka

Gæsssss

Blessuð, þá er búið taka okkur bæði í gegn, steggja og gæsa. Þvílíkur snilldar dagur. Þetta var alveg æðislegt frá A-Ö. Hér kemur gæsasagan: Dagurinn byrjaði hjá mér þannig að það heyrist fram á stigagangi flaut alveg á fullu og að einhver er að hlaupa. Svo er hringt á bjöllunni og þar standa tveir hermannaklæddir menn með grímur og einn sem tók þetta allt upp á video. Sem ég reyndar fann út að væri Lísa María tihihihi. Þeir segja wo bist Stænúnn, schnell og það var öskrað á mig á þýsku og ensku með þýskum hreimi. Ég skellti mér í yndislegan brúðakjól frá Begga vínkonu, bleika háhælaða skó, sem notabeni voru allt of stórir, slör með djöflahornum og geggjaðan leðurjakka tihihih, svaka flott í þessu öllu. Ekki má gleyma grænu netsokkabuxunum. Þegar ég var búin að finna bikini og aðra skó í flýti og stressi yfir öskrunum í þeim þá henti einn mér upp á öxlina á sér og hljóp með mig alla leið niður og ég með trefil fyrir augunum. Þegar þeir voru búnir að henda mér inn í bíl, einhverja druslu hehe þá var brunað af stað og þá meina ég brunað og þeir blaðrandi allskonar rugl á þýsku og með ramstein á. Ég hló og hló eins og vitleysingur aftur í og vissi ekkert hvað var í gangi eða hvert var verið að fara með mig. Ég fékk strax bjór með röri, sem ég átti að hella í mig, meðan hann keyrði eins og brjálaðingur og henti bílnum af og til og sagði zthey are boming us hehehe. Svo hét einn af þeim Abdul:) Geðveikt fyndnir gaurar. Þeir byrjuðu með að láta mig syngja með ennþá bundið fyrir augunum, höfuð, herðar, hné og tær á þýsku og taka eitt tóbasskot og kl. var 11.00 ojjjjj. Við vorum komin á æskuslóðir; Logafoldina og ég fór á rólóvöllinn og leysti þar þrautir og fékk verndarvængi voða flotta bleika og risastórir og fult af bleikum blöðrum hengu á þessu. Síðan var bundið aftur fyrir augun og við enduðum upp í grunnskólanum sem ég var í Hamraskóla, þar þurfti ég að gera ýmsar skemmtilegar þrautir, eins og að hlaupa og púzzla á 4 mín., búa til skopparabolta, drekka meira vín og hlæja og hlæja eins og einhver geðsjúklingur hehehehe. Eftir þessar þrautir og píningu enduðum við fyrir framan MS, þar fékk ég vísbendingar um að fara bak við skólann, ég hljóp þangað og þar tóku þessar líka flottu gellur á móti mér, allar í hvítum skyrtum með svört bindi og svörtum buxum og með rauð djöflahorn. Þar var kertaljós, fult af bleikum blöðrum, meira áfengi og ég var krýnd gæs 2006 með borða. Við knúsuðumst og það voru teknar fult af fyndnum myndum. Svo fékk ég aftur fyrir augun og við enduðum upp í magadanshúsi þar sem ég var tekin og þær í súludanskennslu, geðveikt gaman og þvílíkt erfitt, enda er ég að drepast úr harðsperum núna arggggg, ég er að tala um harðsperur dauðans í öllum vöðvum líkamans. Þetta var rosa gaman , hittum meira að segja aðra gæs og vínkonur hennar og þar var auðvitað myndað. Eftir tímann fengum við tippaköku, alveg svakalegt tippi með lakkrís reimum sem tippahár, bollur og meira vín, nóg af því. Síðan var farið með mig í nornabúð, þar fékk ég ástarskot og einhvern kassa með ýmsum galdrahlutum fyrir hjónabandið. Ég fékk með mér heim einhver seiði fyrir mig og hann. Eftir þetta enduðum við í baðhúsinu í heita pottinum ahhhh það var sko nice fengum freyðivín, osta og vínber og spjölluðum mikið saman. Þegar það var búið gerðum við okkur allar fínar og ég fékk Jóhönnu til að farða mig, algjör skutla eftir hana. Ég við fórum upp í keiluhöll. Við vorum allar orðnar góðar af víninu (nema Elfa með bumbubúann) og skemmtum okkur konunglega, hentum kúlunni á ýmsum vegum, öskrað, sungið og dansað. Endalaus gleði, þar fengum við svona kælitunnu með fult af klökum og ísköldum bjór. Þegar við vorum búnar að flippa fengum við okkur að borða þar og skelltum okkur svo í partý til Beggu og Helga, Hann 30 ára og hún að útskrifast frá designskóla. Við vorum í svo miklu stuði að við dugðum stutt þar, en þetta var samt æðislegt hjá þeim, rosa huggó og geðveikur matur nammmm fæ vatn í munninn. Við fórum niður í bæ og keyptum okkur fult af víni á einhverjum bar og tókum með út í blíðuna, ótrúlega heitt og gott veður. Við drukkum áfram, töluðu við fult af túristum, og ég verð komin í albúmið hjá mörgum eftir þetta tihihih. Skotið úr nornabúðinni virkaði vel, því karlpeningurinn hafði mikin áhuga. Þetta var svakalegt djamm, nokkrir barir, ég spila á bongótrommur fyrir utan bar sem var verið að opna, frí bolla og stemmning. Við hittum gömul hjón sem fóru að tjatta við okkur um sitt hjónaband og svona, komst að því að hann hafði haldið framhjá henni fyrir löngu og átti víst barn út frá því, hún fyrirgaf honum því henni þótti svo vænt um hann, sér víst ekkert eftir að hafa fyrirgefið honum. Ég fór líka á spjallið við 7 danska sjóliða, rosa skemmtilegir og ætluðu að draga mig með á goldfinger. Síðan var djammað og djammað. Endaði heima kl. 3.00 eftir yndislegan dag og kvöld. Þetta var fullkomið allt saman. Og ég slapp við þynnku veiiiiiii. Kemur mér á óvart eftir allt þetta bland og öll þessi skot. úffffffffffffffffffffffffffff En elsku bestu bestu vínkonur mínar TAKK FYRIR ÞENNAN DAG!!!!!!  Þessum degi gleymi ég aldrei og ég mun hefna mín hohoho hlakka ti:haha: Knússsssss til Jóhönnu, Elfu, Beggu, Lísu Maríu, Rakel, Siggu, Siggu og Hebu frænku þið eruð bestar. Hlakka til að hitta ykkur aftur. Það var ýmislegt fleira sem við upplifðum þennan dag, nenni ekki að skrifa meira. Tjáaaa

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 23:49:23 / steinka

Spennóooooo

Úfff hvað maður er orðinn spenntur:) Brúðkaup nálgast og allt að smella saman, samt alltaf eitthvað eftir, en það er bara gaman. Er búin að vera undirbúa alltaf eitthvað á hverjum degi. Við vorum að koma úr bíó með Gilla, við sáum myndina Pirates of carabien, mjög góð, segi ekki meira. Tinna vínkona var einmitt að prufufarða mig fyrir 2 dögum, svaka gaman, hún er líka svo klár þessi elska!! Hlakka til að koma í full make over. Annars hef ég nú ekkert mikið meira að segja. Reyndar skrapp ég á djammið þar síðustu helgi og slemmtir mig svona líka vel. Bara langt síðan ég hef haft það svona gaman og líka í bænum sko. Þetta var með the peppers gellum og fleirum. Ég og Jóhanna máluðum bæinn rauðan og svona líka, tihihih segi ekki meira ....... Well bæææææ

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 19:20:14 / steinka

Mánuður í wedding

 

Hejsa allt mjög gott af okkur. Ferðin til danaveldis var æðisleg. Mikil sól og sumar og rosalega skemmtilegt allt saman. Amma og afi í Hábæ komu með okkur þannig að við vorum smá hópur við útskriftina. Útskriftin var fín, mjög fyndinn nýji rektorinn okkar, hvítvín og rautt og tapashlaðborð, síðan var jazzhljómsveit. Eftir athöfnina fórum við og settumst við síkið og Sigga og Sara danska komu og skáluðuðu með okkur, voða nice. Það var mikið brallað bæði í Aarhus og Köben, strikið, Randers regnskov, Tivoli, bakken og fleira. Um kvöldið eftir athöfn fórum við fínt út að borða á Ritz þar sem var dekrað við okkur við 5 rétta máltíð. Gunnar Sig. var með okkur. Við náum líka að hitta Lísu M vínkonu, Casper manninn hennar og Sögu Liv dóttir þeirra, fórum með þeim í sommerland þar sem eg píndi mig í hræðilegar vatnsrennubrautir. Anna María skemmti sér konunglega í vatninu. Núna er maður komin heim og er byrjaður að undirbúa brúðkaup og vinna eitthvað. Atli var að koma úr leiguverkefni, þar sem hann var í Belgíu og flaug þaðan til Möltu og fleira. Er búinn að vera í viku. Bless að sinni, bara smá fréttir af ykkur, knus og kram

Það virðist hafa orðið eitthvað rugl með brúðkaupsíðuna okkar; Ef þið viljið Kíkja inn á hana þá er það neðri Steinunn og Atli sem á að klikka á, hitt er gamallt blogg og gjafalistar vitlausir þar að leiðandi8| Eða fara inn á linkinn frá þessari síðu, það er lang auðveldast.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 11:55:49 / steinka

Ojjj

Var búin að skrifa fullt og allt datt út argggggggggg. Skrifa seinna í dag, þá fáiði ferðasöguna og fleira skemmtilegt:) Verð að drífa mig að brúðkaupsþvælast og Begga vínkona með, svona skemmtilegra sko. Bless á meðan

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 23:05:42 / steinka

Stuð á bæ

Sæl og blessuð öllsömul. Allt það besta af okkur. Ég er orðin spennt að taka við masterviðurkenningunni. Maður á hana sko skilið!! Búið að vera mikil vinna og mikið stress í langan tíma. Mjög leiðinlegt að heyra að það eru sumir að halda því fram að hann elskulegi faðir minn hafi gert verkefnið fyrir mig, tihihih ég hlæ af því og gef skít í það lið, ég veit betur og þeir sem trúa á mig= Steinku;) Þetta á líka eftir að elta mig í framtíðinni þegar öfundsjúkir arkitektar halda að pabbi reddi hinu og þessu. Þetta lenti hann pabbi í sjálfur, en sýndi sig og sannaði og hana nú. Brúðkaupsundirbúningur er komin á skrið og fer enn hraðar þegar ég kem frá danaveldinu. Öll familien ætlar með, meira að segja amma og afi í Hábæ. Þetta verður stuð. Það var verið að gæsa Rakel vínkonu mína í gær, mjög gaman. Það var gert ýmislegt skondið og hún fekk dekur og magadansæfingu, ekki má gleyma súludansæfingu. Þegar ég kom heim var Gísli vinur kominn í heimsókn, alltaf nice að hitta hann. Meira af því Gilli! Tinna vínkona og Bjössi kærasti hennar ætla að ganga í það heilaga á morgun. Ég er með fiðring í maganum með henni, það er svona þegar maður er að fara að gera það sama. Þetta verður æðislegur dagur hjá þeim skötuhjúum. Til hamingju elskur. Já meðan ég man, þeir sem eru búnir að fá boð í brúðkaupið endilega staðfestið komu ykkar sem fyrst. Það er svo gaman að sjá hverjir koma, ein orðin spennt. Góða helgi dömur mínar og herrar. En ekki fyrir þá sem tala á bak við mann og búa til kjaftasögur, púummmm á þá!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11